http://hallarut.blog.is/blog/hallarut/entry/594049/

Góðan dag.Set þetta inn fyrir Höllu Rut.Sem er að leita hjálpar fyrir vinkonu sína.Bestu kveðjur

Fýlupoki?? Plús meir..

Þoldi hann ekki smá vætu og gjólu? Kanski aðeins meir.Held að það væri ekki vinsælt ef ég hætti í minni vinnu ef ringdi aðeins og blési,og mætti aftur í sól og sumaryl í næstu viku kanski.Eins og Sandy.Kallgreyið sem mætti frá Nýja-Sjálandi,með von um að keppa.Skamm Sandy.

16.ára landsliðið í körfu kvenna komið í úrslit á mótinu í Monaco.Keppa við Albani í úrslitum.Vona að það verði ekki vanmat í gangi og taki þær með stæl.Áfram stelpur.

Fór ekki eins vel fyrri leikirnir hjá Val,ÍA og FH og maður hefði viljað í Evropukeppninni.Með fullri virðingu fyrir Lux... liðinu þá átti FH að taka þá betur.En vonum það besta í seinni leikjunum.Verðum að fara að fá Íslensku liðin eitthvað áfram í keppninni.Skandall hjá vinum mínum í Fylki að komast ekki áfram um daginn.Eftir fín úrslit í fyrri leiknum.   Kveðja

 

 

 


mbl.is Sandy Lyle ætlar að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur tvö..

jæja,þá er seinni leikurinn við Litháa á morgun 15 júlí í Vilníus.Töpuðum sæmilega stórt í gær.En verður betra á morgun vonum við.En njótið þess að vera í Litháen.Ég vona að Litháar vinni gullið á Ol.U-16 liðið er að fara keppa í Monaco.Óska þeim góðs gengis.Kvennaliðið í æfingabúðum í Borgarnesi.Áfram Ísland.

Litháen-Ísland

Jæja,þá keppa Íslendingar við Litháa í körfu á morgun í Kaunas.Aldeilis frábært tækifæri sem þeir fá.Litháar ein besta þjóð í heimi í körfu.Veit að þeir gera sitt besta.Og læra vel.Veit að það gerir þeim bara gott að Jón A.Stef.gefur ekki kost á sér í þessa tvo leiki,vegna prívat mála.Held að sé vont að hafa svokallaðan dýrling í liði,sem allt á að snúast um kanski.Samanber karlalandsliðið í fótbolta.Seinni leikurinn er 15 júlí.Áfram Ísland.Meir í Karfan.is 


Greta Mjöll,áfram

Elsku Greta Mjöll.ÆÆ slæmt að heyra þessar fréttir.En ég óska þér alls hins besta og góðs bata.Veit að þú og þín fjölskylda takið góða ákvörðun.Já mætum á Frakkleikinn og sjáumst á EM eftir rúmt ár.Er búin að negla sumarfríið mitt þá..Kærar kveðjur til þinna frábæru foreldra.
mbl.is „Öll mín plön raskast við þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlu liðin missa........

Er þörf á þessu hjá Valsstúlkum?Er hópurinn ekki nógu breiður?Margar góðar sem komast ekki einu sinni í 18 manna hópinn.Eru(búnar) að rúlla deildinni upp.Miður skemmtilegt fyrir deildina,en ekki þær að sjálfsögðu.Að kaupa eina af þeim betri útlendingum nú af litlu liðunum svokölluðu.Þessi litlu lið eru að reyna að fá mjög sterka leikmenn,til að reyna að forðast stóru töpin gegn stóru liðunum.En þær lána 3 ungar og efnilegar í staðinn.Vegni þeim vel.Gangi ykkur vel í Evrópukeppninni Valur.Þið rústið þessu.Áfram stelpur í öllum liðum.Þið eruð framtíðin og stolt okkar í boltanum.Bíð spenntur eftir Frakkaleiknum,ég spái,ja þori ekki að segja það.En sjáumst á EM.Kv

 


mbl.is Leikmannaskipti hjá Val og Aftureldingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk ABBA.

Takk ABBA.Þið voruð frábær og lögin ykkar muna lifa um ókomna tíð.Mun örugglega sjá Mamma Mia ef hún kemur hingað á klakann.Ég viðurkenni alveg ást mína á ykkur,og vonandi fleiri.ABBA kveðjur.
mbl.is Aldrei saman á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komum glöð heim....

Vona að skynsemin ráði ríkjum í öllum akstri um helgina.Menn sýni tilitsemi,og flýti sér hægt.Bros og hjálpsemi sakar ekki.Eigi allir góða helgi hvar sem menn verða.Hjálpumst,að allir komi glaðir heim.
mbl.is Ein stærsta ferðahelgi landsins framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toppur eða næst.....

 Frábært Alfreð til hamingju.Alltaf haldið með Kiel.Vil fá Róbert Gunnars. í liðið.Áfram Kiel.
mbl.is Alfreð: „Fæ ekki mörg slík tækifæri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þó einn....

Herkænska hjá þeim,að sjálfsögðu spilar kappinn.Og hvað þó einn eða tveir detti út hjá þeim.Mikið fleiri forföll voru hjá Tyrkjunum,en þeir spiluðu með lífi,sál og hjarta.Annað en hjá Þjóðverjum,væla ef vantar einn.En á fótbolta.net var sagt í vikunni að boltinn sem verður(eða átti) að nota í úrslitaleiknum sé kominn í búðina hjá Jóa Útherja og sé til sölu.Hvað nota þeir þá........en vonandi verður þetta góður leikur og verði ekki 11 manna vörn hjá báðum liðum.

 


mbl.is Ballack ekki með Þjóðverjum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Halldór Jóhannsson
Halldór Jóhannsson

Heima á Akranesi.Þriðja tilraun við það..Vann á Eskifirði árið "81 til "84.Frábær staður,heimamenn algjörlega klassafólk.Strax velkominn í kaffi og spil frá fyrsta degi..Grundarfjörður "86-"00. hjá þeim öðlingum G-Run.Vinn hjá Skagaverk..Rútu, vörubílaútgerð,með meiru.Fæddist í Reykhólasveit.Undurfögur er hún,og Vaðalfjöllin eru eðal.Netfang mitt er halldor32@simnet.is 

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband